Upphafið er auðvitað endirinn.

Góðan dag gott fólk.Í dag fer ég í fermingaveislu sonar mjög góðra vina minna sem ég hef þekkt í 16 eða 17 ár,við vorum nánir félagar ég og Faðir drengsins og ég fékk heiður á að passa fyrir þau svo þau gátu lyft sér á kreik þegar drengurinn var bara nokkra mánaða,mér var treyst af þeim þó sjálfur hafi ég verið barnlaus á þessum tíma,ég verð víst að fara einn því ekki er ég með börn mín þessa helgi sem mér þykir auðvitað sárt en ég ber harm minn í hljóði og ber mig vel.

Ég ætla að skrifa nú um hversvegna við höfum fjarlægst svona lögmálið sem Guð okkur gaf,ég veit ekki betur en að hann hafi skapað mann og konu bauð þeim síðan að verða eitt hold,í mínum augum þýðir það að kona og maður eru eitt í öllum sínum málefnum og gerðum,maðurinn reynir að afla til heimilis,og búa konu og börnum gott heimili svo allir geti verið hamingjusamir,ég fór með fyrrum konu til allra þessara verka,fyrst leigðum við,síðan urðum við það lánsöm að ávaxta af ást okkar(allra vegana minni)tvö yndisleg börn dreng og stúlku,sem við elskum bæði mjög heitt það veit ég,þó ég viti ekkert um hvort konan hafi nokkurntíma elskað mig,það einn veit drottinn Jesú.

Í mínum augum er skilnaður synd,og ég reyni eftir bestu getu að fyrirgefa og elska virða,náunga minn,ég hef alltaf beðið fyrir öllum mönnum sem þjást og vil öllum vel,ég er sjálfur skilnaðarbarn og veit alveg hvernig það fór með mig sem ungan dreng,það hlustaði enginn á mig og ég hafði ekkert um málið að segja nema þú gerir pabba þínum það ekki til geðs að bla bla bla,afhverju mátti ég ekki búa hjá pabba ef ég vildi það frekar,nei ég þurfti að horfa uppá syndir móður minnar og kyngja endalaust einhverju bulli frá Móður og jafnvel systur og bróður,en auðvitað eru þau mitt blóð sem ég elska skilyrðislaust eins og ég geri við börn mín,ég reyni að virða vilja Guðs og geri mitt allrabesta,það má ekki endalaust neyða mig til að meðtaka syndir annarra ég óska þeim auðvitað velfarnaðar,en ég kæri mig ekki um að umgangast fólk sem fer illa með mig og gjafir mínar og notar mig eins og gólfmottu.

Ég vil fá að deyja Drottni mínum Jesú Kristi,eins og ég kýs með höfuð hátt stoltur afþví sem mér hefur tekist að afreka um æfi mína og Mannsonurinn mun dæma mig eins og alla menn,ég á víst vini á báðum stöðum sem bíða mín í röðum,en ég kýs að vera trúr allt til dauða og mun vonandi hljóta lífsins kóronu,þetta mun vera minn vilji,ekki beit ég í eplið forðum daga það var víst Adam vegna ástarsinnar til Evu,og höggormurinn tældi hana,því hann vissi að hann haggaði ekki Adam síðan hefur víst syndin fylgt okkur allatíð,en verið hughraust dómsdagur nálgast og allt verður nýtt á ný.

Megi Jesú með ykkur vaka og vernda ykkur freistingum frá.

Virðingafyllst:Úlfar B Aspar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband