23.3.2007 | 06:36
Ég skal bara sjá um að dæma þjóðirnar.
Komið öll sæl og blessuð.Jæja þá er víst komin helgi á ný,eins og sést á mínu bloggi starfa ég að mestu einn,engir blogg vinir eða neitt svoleiðis,ég hef alltaf starfað að mestu einn,fengist við vélar og tölvur frá því ég var bara strákur,það góða við vélar og tölvur,þær gera bara eins og fyrir þær er lagt og svara ekki til baka,þegar ég reiðist þeim.
Ég get sko alveg sagt ykkur satt með það ég er sko alvöru skapmaður og líð enga vitleysu endalaust,ég svara fullum hálsi öllu bulli og rugli,og er oftst beðinn að slappa af,sem ég auðvitað geri síðan oftast mjög fljótlega,fljótur upp og jafnsnöggur niður aftur,og ég fyrirgef alltaf öllum og bið síðan fyrir viðkomandi aðila og reyndar öllu fólki um allann heim,við erum jú bræður og systur öll og eigum að hjálpa hvert öðru,enda öll börn guðs.
Ég get alveg sagt ykkur það er búið að blása í alla lúðra og dómurinn einn er eftir,og ef einhver ætlar að segja mér annað getur hinn sami bara átt sig,ég er sko engin gunga og rola og hef aldrei verið,ég kann að berjast fyrir lífi mínu og ég hef barist við satan stanslaust síðan ég var bara barn,ég er mikill spámaður,stærðfræðingur,skyggn og vissulega guðfræðingur á heimsmælikvarða,og ef enginn þorir með mér í stríðið mikla skal ég bara sjá um þetta alveg einn,hið illa afl er skít hrætt við mig,og flýr um leið og ég mæti,enda er satan drulluhræddur við hvað,jú sannleikann og hann get ég alveg sagt.Ég lýg ekki að neinum lengur og er löngu búinn að vinna öll spor og erfðavenjurnar oftar en einusinni og tvisvar.Verið þið bara heima og slappið af ég skal sjá um satan sjálfur.
Megið eiga góðan dag verið góð hvert við annað og elskið af öllum hug og hjarta,biðjið og ykkur mun hlotnast megi guð ykkur geyma og Jesú yfir ykkur vaka dag og nótt.
Virðingafyllst:Úlfar B Aspar.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.