Hálfnað verk þá hafið er.

Komið öll sæl og blessuð enn á ný,jæja þá er ég víst búinn að færa viðskipti húsfélagsins í landsbankann,blikksmiðirnir koma öðruhvoru megin við helgi,allt klappar og klárt með sjóvá,og ég fékk tíma á þriðjudag 10/4 kl 10.30 hjá bankastjóranum í spk,og ég skal sko kenna honum stærðfræði og spk fær að borga hverja krónu sem það skuldar húsfélaginu,ég fæ hverja færslu hjá hverjum einasta íbúa og eitt megið þið vita bankamenn,þið stelið sko ekki frá mér og mínum það er alveg á hreinu,ég veit allt um verðtryggingu og vexti og hvernig kerfið hér virkar.Og auðvitað fór ég með elsku bestu mömmu í endurskoðanda,bankann búðina og að kaupa sér tóbak,og dagurinn bara hálnaður og ég sótti dótið í húsó,það er gott að búa í Keflavík þetta er allt bara einn góður hringur og ef maður er skipulagður þá er þetta bara ein góð ferð og allt klárt,já ég kann að vinna þó ég segi sjálfur frá hehehe.

Svo er auðvitað karfan allt í járnum 1-1 hjá Njarðvík og Grindó 1-1 KR,Snæfell svo þetta verður gaman,ég skal segja ykkur eitt sókn er besta vörnin og í næsta leik verður keyrt á fullu og maður á mann í alla bolta gefið engin frí skot,vinna fyrir kaupinu segi ég alltaf þá vinnum við leikinn það á enginn að koma í Ljónagryfjuna og fá að fara heim með eitthvað gefins það er bara alveg ljóst í mínum huga,þetta er okkar völlur og hann eigum við skuldlaust,þó sé búið að selja þetta einhverjum fasteignaköllum,ég á við aðdáendur við skuldum ekkert í þessu og borgum miða okkar á fullu verði og viljum árangur auðvitað en eins og sagt er í N.B.A I love this game.verið góð hvert við annað kveður til allra frá mér.

Virðingafyllst:Úlfar B Aspar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband