Til Hamingju með daginn.

Jæja þá er runinn upp hinn 17 júni 2007 og eins og margir vita með mig elska ég tölur og ef Lýðveldistölur síðan 1944 eru samlagað mun koma upp 63 ár og þvertala 63 mun og er 9 sama tala kemur upp í árinu 2007 og veit þetta auðvitað á gott.

Enda er stutt síðan kosið var og ný stjórn kom til sögurnar og bjartsýni á komandi tíma er ríkjandi meðal almennings einnig talan 9 á langa sögu og veit yfirleitt bara á gott þegar hún kemur upp og þegar hún kemur oft upp er það alls ekki verra,tildæmis uppáhalds samtök mín eru einmitt 72 ára um þessar mundir og hvaða tölu ber það einmitt 9.

Annars er allt gott héðan af mér að frétta fór áðan með börnin í bæinn og keyptar voru auðvitað helíumblöðrur og candy floss,svo allir eru kátir mikið um dýrðir í bænum og nóg um að vera.Nú er stund milli stríða og fengið sér kaffi og með því síðan verður aftur haldið af stað og menningin skoðuð og hlustað á tónlist og þessháttar 17 júni hefur oft haft mikla þýðingu í mínum huga ég trúlofaði mig á þessum degi eitt árið og svo var þetta eitt árið edrúdagurinn minn þó seinna ég hafi fallið eftir þá meðferð en samt þessi dagur er mér kær og vonandi er hann ykkur kær líka.

Læt þetta duga að sinni megi góðar vættir ykkur geyma og vernda Úlli.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband