26.6.2007 | 07:45
Hver ákveður hvað og eftir hverju er farið.
Komið öll sæl og bless,hef verið að velta fyrir þessum bloggheimi hér á mogganum góða.Síðan ég byrjaði sjálfur hérna fyrir einhverjum mánuðum að blogga mér til dundurs hef ég tekið eftir í sambandi við flokkun bloggsins umræðan vinsælblogg og allt þetta dót.Síðan eru valdar greinar af og til sem koma í blaðið og neðst á mbl.is.Hver ákveður hvað á að birta og eftir hverju er farið.
Mér sýnist oft þetta vera sama liðið aftur og aftur sem valið er og það er auðvitað svo í þessu eins og öðru snobbað fyrir sumum en öðrum ekki.Ekki að þetta skipti einhverju mér bara hundleiðist mismunun á fólki og er alltaf að rembast eitthvað varðandi jafnrétti,mér finnst ég stundum ekki þokast neitt áfram í þeim efnum og að ég berjist endalaust við vindmillur.
Margar af þessum greinum sem valdar eru finnst mér stundum hreinlega engu skila í neina umræðu og verið sé hreinlega að hampa fólkinu sem bloggar viðkomandi fæl fremur en að fælinn hafi eitthvað fram að færa.Ekki misskilja mig gott fólk það er jú alveg hellingur af flottu og góðu efni og hér eru margir góðir pennar á ferð og ég er alveg klár á að margir sem eru að blogga hér gætu orðið alveg frábærir blaðamenn.
Ég er ekki einn af þeim enda tilgangur minn hér ekki slíkur heldur er ég ekkert að skrifa ýtarlegar greinar um eitt eða neitt ég mest sendi svona sneiðar okkur til umhugsunar,og við og við skrifa ég um eitthvað sem mér finnst og hver og hvaðan ég kem,hvert ég stefni vonandi og hvað knýr mig áfram í leit minni að jú mest sjálfum mér og tilgangi lífs míns.
Samt sem áður þá vil ég taka fram að ég er auðvitað að mestu ánægður með framtak mbl.is varðandi þetta blogg og jú þeir verða að fylgja settum reglum í þessum heimi sem og öðru.Enda hef ég fengið viðvörun og er þessvegna ekki eins beinskeittur og ég hefði kosið og ég leyfi mér ekkert að sleppa af mér beislinu og blogga allt :) þó ég vissulega bloggi oft um margt þá gef ég ekkert lengur allt uppi.
Það er nefninlega oft svo í þessu lífi að sumir eru endalaust að segja öðrum að þeir séu svona og svona og troða sínu yfir á aðra,svo best er að þegja við og við og leyfa fólki að hafa sitt.Það segir mér enginn lengur að ég sé svona og svona ég hef verið að skoða sjálfan mig stanslaust frá því ég var barn og veit alveg núna hver ég er og hvað bíður mín.
Þið ættuð bara að sjá það sem ég hef verið að kafa í undanfarin ár og mest í felum fyrir öðrum svo ég verði ekki hreinlega lokaður inni á geðdeild þó ég geri ekki flugu mein.Það er nefninlega svo að vera með tölvu og hana tengda um netið þá er hægt að leyta uppi næstum allt er varðar allt og ekkert og ef þú hefur áhuga á einhverju þá er hægt að finna ýmis svör hér.
Ég hef nú samt fengið mín svör mest í sýnum og draumum vegna hugleiðslu og bæna minna,ég hef nefninlega haft áhuga á guði mínum Jesú alveg frá því ég man eftir mér og var kennt að byðja.Mér bara vegna óþroska fannst það svo lítið kúl lengst af að ég vildi aldrei viðurkenna hversu kær hann er mér í leit minni að þroska og að geta haft hann sem mína helstu fyrirmynd varðandi að vera maður enda mesti kennari að ég tel sem uppi hefur verið,enginn mun aftur koma honum fremri fyrr en hreinlega hann kemur aftur.
Eigið góðan dag og megi Guð ykkar vera ykkur náðugur virðingafyllst:Úlfar B Aspar.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.