Færsluflokkur: Bloggar
10.12.2007 | 20:35
Einu sinni á ári fæ ég póst
sem nú styttist í og ber ekki yfirskriftina yndislegu greiðandi og svo auðvitað nafn mitt,þessi póstur eru hin sívinsælu jólakort.Ég er kannski ekki duglegasti jólakortaskrifari heimsins en ég tók mig saman í andlytinu í fyrra og skrifaði helling af jólakortum.
Hins vegar hef ég ekki ákveðið enn með þessi hvort ég skrifa einhver eður ei,en ætli ég verði ekki að fara taka um það ákvörðun fljótlega því mínir vinir búa um heim allann.Kannski bara e-maila ég bara línuna og segi það gott.En þetta voru svona vangaveltur kvöldsins í boði hússins eigið góða daga mínir kæru lesendur kveðja Úlli.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
9.12.2007 | 15:14
Hvað er að frummyndinni
ekki vil ég fara í þá sálma hér að bera saman Marilyn og Britney,þar hallar of mikið á Britney að hún standist samanburð.Svo er bara annað vert að skoða haus Britney líkami konu í formi og stuldur á verki sem er ódauðlegt.
Ég segi nú bara endurprentið bara frummyndina og málið dautt.
![]() |
Britney“ í stellingum Marilyn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.12.2007 | 20:57
Af hverju geri ég mér
þetta búinn að sitja yfir spaugstofunni og laugardagslögunum,og ég verð bara að segja eins og er rusl og ekkert annað en rusl.Ég get svarið það af hversu bara feisa ég ekki bara sannleikann.
Og hann er bara á þann veg að mér finnst íslenskt sjónvarpefni meira og minna ónýtt og ég þoli það ekki,það sama á við íslenska tónlist mér bara finnst meira og minna ekki baun vera að gerast þar heldur.Kannski er ég bara svona neikvæður og fúll á móti dæmi eitthvað.Og svo er alltaf rok og skítakuldi þar sem ég bý.
Fuck ég ætla að hætta núna og snúa dæminu við með einhverju móti verið sæl kveðja Úlli.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
8.12.2007 | 13:41
Arg ég heimta
![]() |
Portsmouth lagði Aston Villa, 3:1 |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
5.12.2007 | 06:53
Jú jú
![]() |
Gillzenegger tók bloggfærslu út fyrir mömmu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
3.12.2007 | 20:36
Ekki gengur nú að sitja
við tölvu sína og moka uppísig súkkulaði eins og ég er að gera nú,málið er bara að ég ætti að vera á fullu að skreyta og setja upp seríur í gluggana og svoleiðis fyrir jólin.
Ég verð bara að segja eins og er ég er eitthvað andlaus þessa dagana og hreinlega þreyttur,auðvitað er allt í lagi að gera bara ekkert svona stöku sinnum og mér á að finnast það bara fínt.Ég er sjálfur mér verstur alltaf að skammast í sjálfinu ef ég slaka á. Árið 2007 hefur svo sem verið mér gott og mér gangur flest í haginn,ég á samt eftir að gera upp í sálu minni stórt mál til að öðlast frið í hjarta og sálu minni.
Til að svo geti orðið verð ég að láta af sem mér er reyndar þvert um geð,ég er ekki þessi típa sem gefst upp fyrir einu eða neinu þegar ég bít eitthvað í mig.En auðvitað verð ég að klára viss mál til að getað haldið áfram för minni um lífið og lært af því,ég veit eitt ég vil og þrái að vera áfram edrú og til þess þarf ég að leggja á mig eitthvað og verða fær um að gefa eins og að þiggja,og þar kannski liggur hundur minn grafinn.
Ég á reyndar sterkt af í guði mínum Jesú og ég reyni að tengja mig honum og verða fær um að gera hans vilja,en stundum vill ég bara gera minn vilja sem síðan mig oft tekur af braut og færir mig fjær guði mínum.Þetta með viljann er svo sterkt afl stundum að vissulega getur það komið manni um koll,þegar maður verður svo þver og erfiður að ekki er tauti komið við.
Ég veit bara eitt að ég hef komist nokkrum sinnum um æfina í svo góða líðan að slíka fékk ég aldrei í neyslu sama hversu gott kikkið var,og auðvitað vil ég dveljast sem oftast í slíkri sælu.Ég er sennilega skapstór frekjuhundur þegar því er að skipta og stundum bara sé ég það ekki sjálfur eða vil ekki sjá það.
Well hvernig ég tækla þessi mál mín verður að koma í ljós og ég ætla að leyfa mér nú að gera ekki neitt í bili nema safna kröftum og síðan kannski á miðvikudag byrja ég að ljósa mína glugga.Ég þakka ykkur öllum heimsóknina og megi guð ykkur fylgja og varðveita í Jesú nafni kveðja Úlli.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
2.12.2007 | 19:21
Jahérna beint í toppleik
![]() |
Aston Villa gegn Man.Utd í bikarnum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.12.2007 | 17:47
Uss ég verð bara að sjá hvernig fer
þegar leik líkur Mínir menn komust yfir og ég bíð bara spenntur hvað verða vill,kannski verða Villamenn fyrstir til að leggja Arsenal á þessari leiktíð og ekki væri það nú ónýtt.
Lifið heil og gangið hægt um gleðinnar dyr í kveld kveðja Úlli.
![]() |
Arsenal náði fimm stiga forystu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
30.11.2007 | 07:32
Kisan okkar hún Rósa
gerði sér lítið fyrir og átti 4 stykki kettlinga í nótt.Ég vaknaði um 4 leytið í nótt við eitthvað tíst og þá var ballið byrjað,hún er ekki stór af kisu að vera enda bara rétt um ársgömul en hún Rósa átti ekki í neinum vandræðum með þetta.Ég fékk að vísu að fylgjast með og nú liggur hún í fleti sínu malar og gefur þeim.Enda er hún búin að þrífa þá vel og vandlega eins og sönnum ketti sæmir.
Ég veit þegar ég sæki börn mín í dag að það verða gleðistundir hjá dóttur mínni og syni og sennilega má enginn koma inn í herbergi dóttur minnar sem kisan á sitt fleti,fyrr en hún er búin að skoða þetta allt vel og vandlega.
Svo hér verður fjör og gaman næstu daga góðar stundir kveðja Úlli.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
28.11.2007 | 22:06
Ég á erfitt með að venjast
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)