Færsluflokkur: Bloggar

Vissulega en ekki hvað.

Nú þetta er það sem koma skal og ég skil ekki þessa endalausu umræðu eins og við ættum að vera eitthvað hissa.Í mínum augum skiptir engu héðan af hvað við gerum við erum bara orðin of sein og verði okkur bara af því sem koma skal og hananú.
mbl.is Fellibylir tíðari en áður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

California here we come.

First we take manhattan then we'll take Berlin o.s.f.v já ekki skal nú láta deigann síga,heldur ætlum við okkur heiminn allann ekki satt? well what comes around goes around.
mbl.is Geysir Green kaupir 20% í kanadísku jarðhitafyrirtæki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ömurlegt.

Í hvaða helvíti var maðurinn kominn með líf sitt,þráhyggjan svo allráðandi að eina lausn er að drepa og svipta sig síðan lífi,eitthvað hlýtur maðurinn að hafa  átt erfitt og ef lögreglan var svona fljót að tengja tenglin milli mannana hví var ekkert gert?
mbl.is Árásarmaðurinn svipti sig lífi; fannst látinn á Þingvöllum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað með okkur sem kaupum ekki á útsölu?

Hver er vísitala þeirra sem ekki versla á útsölum nokkurn hlut og hafa ekki tíma til að standa í röð í bónus heldur versla í 10/11
mbl.is Glitnir spáir 0,1% lækkun vísitölu neysluverðs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lyfjabransinn=eiturlyfjabransinn?

Svo er að lesa í þessari frétt að lyfjabransinn sé bara ekkert betri en undirheimabransinn með allann sinn skít.Svo má ekki gleyma blessuðum viðskiptabransanum ætli hann sé yfir höfuð nokkuð betri en undirheimabransinn,best að segja ekkert um stjórnmálabransann annað en ussssssss það er nú bransi í rugli.
mbl.is Hótuðu gjaldþroti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mikið er mér létt.

Komið heil og sæl það er þungufargi af mér létt.Málið var að kisa barna minna er búin að vera týnd í 10 daga og eftir að hafa sett auglýsingu í Víkurfréttir hérna suður með sjó var ég að heimta hana heim áðan.3 ungar telpur á reki við dóttur mína sáu auglýsinguna með myndinni í blaðinu og voru búnar að hringja fyrir hádegi til að segja að þær vissu hvar hún væri,ekki nóg með að henni hafði verið sinnt þær gáfu henni hundamat og fóður voru búnar að útbúa kassa fyrir hana til hvíldar og Rósa mín var hrein og fín.

Ég auðvitað gladdist svo mikið að ég hreinlega kyssti Kisu og þurfti hreinlega að þvinga fundarlaun handa telpunum sem auðvitað vildu ekkert nema að kisa kæmist heim.Stelpur ég er ykkur ævinlega þakklátur og takk fyrir Rósu.Ég veit hversu kær kisa er dóttir minni og mikið er gott að vita að börnin okkar eru svona ástuðleg gagnvart dýrum sem hafa týnst eða villst af leið,ég mun sofna þakklátur í kvöld vitandi að guð sér um sína.

P.S svo elska ég auðvitað þessa elsku sjálfur þ.e.a.s kisuna Rósu sem var skýrð í höfuð systur minnar af dóttur minni.


Vilji er eitt verk er annað.

Olmert eftir hverju er verið að bíða,ég tel að nú sé bara besti tíminn að hefja viðræður og helst strax.
mbl.is Olmert staðfestir vilja til samninga um stofnun ríkis Palestínumanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

25000 þúsund dollar fyrir bail.

Já það er gott að vera bara fíkill á Íslandi,þegar ég var í neyslu hefði ég ekki getað borgað mig út fyrir 1,5 milljón í tryggingu.En sennilega er þetta svona svipað og fyrir mig að borga 10 krónu sekt í hennar augum.

En svona er að vera alkóhólisti maður ræður engu um fíkn sína nema að þú hreinlega gefist upp og þú gerir það ekki fyrir neinn nema þig sjálfa(n),sektir skipta þar engu Lohan ég vona bara að þú finnir fljótt þinn botn.Megi guð þér hjálpa í leit þinni að sjálfri þér.


mbl.is Lindsay Lohan tekin ölvuð undir stýri með kókaín í fórum sínum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brown skilur þú ótta Írana varðandi yfirgang þinna?

Brown útilokar ekki hernaðaraðgerða gegn Írönum,gott og vel ég tel að muni slíkt verða þá er komin 3 heimstríðsöldin á fullt skrið.Og ég er alls ekki viss um að Brown geri sér grein fyrir hvað mun þá verða.

Ég segi hreint út guð forði okkur frá því að ráðast á Íran því þá verður fjandinn laus og afleiðingar skelfilegar,en hvað veit svo sem annað en að fara muni eins og fara eigi.


mbl.is Brown útilokar ekki hernaðaraðgerðir gegn Írönum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gaman að vita hvernig fer.

Áhugavert framtak málið er auðvitað að tölvan mun geta reiknað líkur á spilum miklu hraðar en mannskeðnan.Síðan er auðvitað með manninn hvernig fer hann að skoða hvort tölvan blöffar eður ei það munu ekki vera nein augu til að lesa,svo þetta verður forvitnilegt að sjá hvernig fer að lokum.
mbl.is Gervigreind gegn bestu pókerspilurum heims
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband