Ég veit mín verður saknað um stund.

Jæja gott fólk,þá er komið að því að í dag blogga ég eitthvað smá síðan er ég kominn í smá frí,er að fara á eftir að setja símanúmerið mitt og þá auðvitað adslið í geymslu um stund því nú á ég hvergi heima hehehe ekki að ég hafi neinar áhyggjur enda vanur að lifa á götunni ef því er að skipta nei nei segi svona samt,ég er að fara ganga frá öllu á eftir lesa af ramagn og allt þetta mun síðan klára alveg að tæma íbúðina og þrífa seinna í dag og síðan cowboyland á morgun hálfur mánuður í the main drulluplays in the world usa en auðvitað er gott fólk þar líka þau bara ráða engu og ef einhver hefur áhuga á að gera eitthvað gott þar þá hvað??? jú hann er skotinn skoðið bara söguna en þetta er allt í lagi ég ætla mér ekkert að gera neitt gott þar svo sem í þetta sinn,vantar upplýsingar og mun hitta mann þessvegna og síðan sé ég til og bara hef það gott hjá minni famely í usa já ég er heppinn ég get næstum ferðast um heiminn allann og þekki alltaf einhvern þaðan sem getur hýst mig og gefið mér upplýsingar ég er alltaf að safna þeim í ferð minni hér á jörðu,legg á minnið það sem ég þarf að nota seinna kannski löngu seinna en samt seinna hehehe.

Já ég veit ég er gufuruglaður og hef bara gaman af enda má ég alveg vera það ef ég kýs svo enda er ég ekki vanur að gera flugu mein en ég hef munninn fyrir neðan nefið og hann hefur oft komið mér í vandræði og jú stundum líka úr vandræðum svo það er svona jafnræði á þessu hjá mér allavegana nú um stundir,það er svo furðulegt ég er farinn að hafa svo gaman af að lifa og njóta að ég bara á ekki til orð yfir þetta allt,oftast hefur mér fundist að vera maður í líkama vera ömurlegt og ekkert nema leiðindi endalaust en núna i love it eftir rúmlega 30 ára basl og bull er ég kannski farinn að uppskera erfiðið hver veit? Eitt veit ég allavegana ég á góða að og mikið af góðum vinum sem hafa undanfarið reynst mér ómetanlegir og ég sem hreinlega vanrækti þetta fólk árum saman og mæti síðan eins og týndi sauðurinn og sé að ég á enn stað í hjarta þessa fólks,ég skal sko ekki gleyma því aftur hversu auðugur ég er og ég veit sennilega mun ég aldrei verða borgunarmaður fyrir hversu margir hafa mig stutt og gert mér vel og ég veit orðið hverjir og hvað skiptir mig máli og nú fylgi ég því sem hugur og hjarta segir mér og ef mér finnst einhverjir ekki verðskulda vináttu mína þá fær viðkomandi hana ekki og ég vel sjálfur,snilld og aftur snilld.

En eins og ég var að segja í upphafi færslu þessarar þá verður lítið frá mér að frétta um stund eða jú mikið en ég færi það ekkert inn verð í fríi eins og Stella hér um árið og mér kemur þetta bara ekki við :)  sennilega mun ég samt lauma smá svona inn við og við til að gera ykkur öfundsjúk þegar ég segi ég sá þessa tónleika eða veiddi svona og svona og þessi golfvöllur sé alveg frábær enda logn og 27 stiga hiti já það er gaman af þessu ef maður kann að slappa af og njóta þess að lifa,og fyrir ykkur sem eruð þunglynd ég verð bara að segja gerir eitthvað í málinu ekki bara gefast upp og taka pillu þá bara verður lífið ykkar tómur blús endalaust og allavegana hef ég ekki áhuga á svoleiðis lífi megi guð ykkur geyma og verið góð hvert við annað þá verða aðrir góðir við ykkur elskið eins og enginn komi dagur á ný því þú veist ekkert hvort hann nokkuð komi í lífi þínu.Kveðjur Úlli.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband