2.1.2008 | 22:07
Einhverntíma
á síðasta ári fjallaði ég duglega um fjármál,og rétt fyrir síðustu kosningar sendi ég færslu um að seðlabankinn myndi auka gullforða sinn,ég sé nú að það voru góð ráð,alveg eins og ég sagði reyndar um markaðinn að hann myndi leiðrétta sig.
Hvar eru nú þeir miklu kallar sem kölluðu mig vitleysing þá, nú um stundir ég bara spyr.
![]() |
Metverð á gulli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
31.12.2007 | 19:55
Jæja Jæja og vissulega jæja

Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
29.12.2007 | 13:29
Smá tipp hjá mér
svona til gamans,
Birmingham-Fulham X
Chelsea-Newcasle 1
Portsmouth-Middlesboro 1
Sunderland-Bolton 2
Tottenham-Reading 1
West Ham-Man U 2
Wigan-Aston Villa 2
Everton-Arsenal X
Best væri auðvitað að West Ham tæki bara Man Und og hitt stæði það væri eðal gott lifið heil Úlli.
![]() |
Eykur Manchester United forskotið? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
28.12.2007 | 21:18
Glæsilegt gat ekki orðið
betra Margrét Lára til hamingju með sigurinn,og síðan get ekki sleppt að minnast á að mínir menn í körfunni tóku Grindavík í Grindavík og það eru einhverjir sætustu sigrar sem ég þekki.
Já svona er þetta bara ég elska þegar Njarðvík tekur Grindavík í smá kennslu I Love it hreinlega góðar stundir kveðja Úlli.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.12.2007 | 22:19
Enn einn lýðræðis og friðarsinni myrtur
![]() |
Lík Bhutto flutt til Larkana |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
26.12.2007 | 16:01
Svaka rimma úffffff
![]() |
Chelsea og Aston Villa skildu jöfn, 4:4 - Brynjar rekinn af velli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
22.12.2007 | 10:07
Ekki má gleyma
að óska ykkur öllum gleðilegrar hátíðar ég er á síðustu metrunum með jólastússið,í dag ætlum við að kaupa jólatré ég og börnin.
Þessi jólaundirbúningur þetta árið hefur gengið alveg eins og smuð vél,ég klára í dag matarinnkaup þrif og skreyta jólatréð.Þá á ég morgun daginn fyrir sjálfan mig og sæki svo börnin annað kveld og alles klar.
Reyndar geri ég eitt líka í dag áður en ég sæki börn mín og það er að keyra út jólakortin sem eru í bæjarfélagi mínu og nágrenni,svona viss stemmning sem ég vil ekki sleppa ég fæ alveg um leið stemmninguna beint í æð og verð aftur lítill drengur sem hlakkar til jólanna.
Ég bý vel að eiga mitt líf frjáls og glaður maður svona að vafnaði,auðvitað get ég dottið í pyttinn minn og orðið gramur like hell,en ég stoppa orðið stutt þar,og það er yndislegt að vita að framtíð mín er eins björt og ég kýs sjálfur að hún verði.
Megi þessi jól færa ykkur öllum gleði og ánægju og kærleik guðs ykkur öllum til handa kveðja Úlli.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
18.12.2007 | 19:32
Lauma inn einni
Færslu svona um mína hagi þessa dagana,ég hef lítinn tíma haft undanfarið í að blogga vegna anna í vinnu og auðvitað einkamálum.Ég skellti mér að hitta föður í gærkveldi hann er kominn suður og verður hér yfir hátiðirnar sem og vissulega er yndislegt.
Ég hafði ekkert hitt hann síðan í sumar og ekki neitt eftir að ég frétti af veikindum hans nema auðvitað símleiðis,allt gengur vel og nýjustu fréttir eru að lyfin fara vel í hann og síðan er bara að sjá framhaldið.Hann gisti síðustu nótt hjá Grím bróður í Grindavík svo stutt var að fara fyrir dreng,við spjölluðum helling feðgar og vorum að vesenast smá við lagnir og blöndunartæki.
Málið er að það er gott að eiga kall að eins og pabba hann er svona maður sem allt getur og hefur lausn á öllum málum varðandi húsnæði manns og þessháttar svo er hann bara þessi yndislega rólega týpa sem við bræður erum ekki.Við erum frekar svona örir gæjar sem vaða í allt og alla sem getur jú haft sína kosti sem og galla,en nóg um það.
Kettlingarnir hennar Rósu kisu dafna vel og eru nú að verða 3 vikna og byrjaðir að fara um húsið,í morgun áður en ég lagði til vinnu minnar leit ég á þá blessaða og einn þeirra var kominn næstum framaf rúminu hennar kisu og byrjaði að væla svona líka flott.Og ég heyri bjölluna hennar Rósu klíngja næstum eins og jólin væru bara mætt.Mál var að hún auðvitað bara brá sér fram í dall sinn að eta enda veitir ekki af verandi með 4 kettlinga á spenum sínum,en sú var snögg að mæta enda þvílík læða sem hún er og ekki verður það nú af henni tekið að góð móðir er hún.
Jæja læt þetta duga í kvöld fer ég auðvitað á fundinn minn góða og skoða mín spor lifið heil og megi guð ykkur geyma kveðja Úlli.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
16.12.2007 | 11:19
Mér líkar ekki auglýsing aftan á Fréttablaðinu í dag
16.des og hún er svo hljóðandi Hann fékk Berlín og hún fékk Barcelona,segum sem svo að þarna væru nú hjón á ferð.
Og næstu jól mun auglýsingin verða svona nokkurnveginn? Hann smellti sér til Berlínar og hitti þar snót eina og nú var vont í efni,en gerði ekkert til því hann hafði fengið sms frá Barcelona um að kona hans hefði það ljómandi fínt með manni að nafni Carlos..................lifið heil og megi guð ykkur geyma kveðja Úlli.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
15.12.2007 | 06:52
Uss stíft programm
þessa daga með að jólin séu á næsta leiti,ég var vakinn af dóttur minni og syni kl 6 í morgun.Málefnið er auðvitað hvað þau hafi jú fengið í skóinn og nú sitja þau við sjónvarpið með köttinn í sofanum og alla kettlingana og horfa á barna dvd.
Ég get þá að vísu smellt inn þessari færslu og farið í að gera jólalistann góða,málið er að í dag ætlum við saman ég og börnin að kaupa jólagjafirnar allar vonandi nema auðvitað þeirra sjálfra.Ég er ekkert sérstaklega mikið fyrir búðaráp og ég ætla að nýta mér börn mín til hjálpar hvað skal jú kaupa fyrir þetta barn og hvað fyrir hitt barnið.Annað ég tók ákvörðun um að versla sem mest í heimahöfn,sem sagt mest hér í Reykjanesbæ.
Ég er alltaf að kvarta yfir að ekki sé nú þessi og þessi búðin hér og að við séum orðin yfir 13000 manns og bla bla blí,nú auðvitað til að svo geti orðið þá auðvitað verð ég að versla heima því engin kemur jú búðin hingað ef ég fer svo bara í bæinn eftir öllu.Það liggur vel á mér þessa dagana og af mér að frétta er bara gott ég hef verið duglegur með mitt undanfarið og unnið vel að minni líðan svo gott er að uppskera eins og sáð er.Jæja ég læt þetta duga nú og fer að gefa börnum mínum morgunmat eigið góða helgi og gangi ykkur öllum allt í haginn guð veri með ykkur kveðja Úlli.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)