Best að kaupa gjaldmiðla núna.

Já nú er tíminn að kaupa erlenda gjaldmiðla helst evru og dollara.Nú er staðan slík hérlendis vegna vaxta og verðtrygginga að krónan mun verða handþvinguð niður,því allar forsendur fyrir öllum spam eru í slíkri spennu að markaðurinn má ekki við að samningum verði sagt upp og kerfið lamað af verkalýðnum.Því segi ég endilega kaupið smá núna gengið verður ekki lægra mikið lengur í þessu ástandi og sama hvað Seðlabankastjórar segja ástandið er óviðunandi og verkalýðurinn mun fá nóg.                                                             Voru ekki þessir menn að fá 200 þús á mánuði kauphækkun þá segi ég vinnið fyrir launum ykkur og verið verðugir þessara launa þið eruð opinberirstarfsmenn og sem slíkir vinnið þið fyrir almúann.
mbl.is Krónan veiktist í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég hef greinilega hætt á hárrettu augnabliki.

Jú jú svona er nú með blessaða rækjuna.Ég hef greinilega tekið rétta ákvörðun þegar ég hætti á síðasta vinnustað sem einmitt þjónar Rækjuiðnaðinum.Svona er ég skemmtilega grísinn alltaf hreint hehehe              djö hvað ég hef gaman af þessu.
mbl.is Rækjuvinnslu hætt hjá Miðfelli á Ísafirði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Við höfum brugðist fleirum en Dafur Rice.

Þú segir ekki ég held að alþjóðasamfélagið hafi brugðist fólkinu í Dafur héraði ha,ef það væri nú bara Dafur sem við höfum brugðist væri ljúft að lifa.Við höfum klikkað í mest allri sögu mannkyns og ég get ekki séð að heimurinn sé að gera mikið rétt nú fremur en fyrri daga.Ég tel að við séum bara orðin of sein Condoleezza mín með flest og héðan í frá mun guð bara hreinlega grípa inní og leiðrétta málin.
mbl.is Rice: Við höfum bruðist fólkinu í Darfur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jihad segja það sem auðvitað hentar hverju sinni.

Jamm sama sagan endalausa hér þessir sögðu þetta hinir eru annað.Við erum heilög þjóð hin mikla Ísrael(hann stjórnar sem guð)og megum þessvegna allt sem okkur sýnist og bla bla bla.Ég sem Íslendingur(hann mun koma aftur)segi það fullum fetum höfum við ekkert lært í næstum 2000 ár frá hvarfi Jesú.Að við erum öll jöfn í augum Drottins og við erum öll hans börn.málið er auðvitað þú snobbar ekki fyrir guði því hann hefur ekki áhuga á snobbi(snobbaðu bara fyrir öðru fólki)hégómi og eftirsókn eftir vindi.
mbl.is Ísraelsmenn gerðu loftárás á bíl á Gasasvæðinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alveg æðislegt eða þannig.

Jú jú ef heldur áfram eins og horfir munu fangelsin okkar á Íslandi ekki rúma aðra en nýbúa eftir 10 ár eða svo.Nei ég er ekkert að alhæfa neitt en þetta er auðvitað svo hver man ekki eftir amfetamín basa og litháinn sem var drekkt fyrir austan um árið.Hvað með þessa 5 pólverja sem næstum nauðguðu konunni á klósetti meðan þeir lúbörðu mann hennar frammi.Það þýðir ekkert að stinga hausnum í sandinn og vona bara það besta.Ég allavegana er ekkert ánægður með þessa þróun og er maður til að blogga um hvað mér finnst.
mbl.is Sex í yfirheyrslu eftir fjöldaárás
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Woodstock 1969 var einmitt eitt drullusvað.

Já svona verður oft þegar dagssetningar eru ákveðnar stundum eru veðurguðir ekki sammála og þá fer svona.Ég fór á woodstock 1999 síðustu hátíðina sem haldin var og þá var 40 stiga hiti og glampandi sól allann tímann og ég og góður vinur hreinlega vorum að brenna upp þarna í restina og flýðum sólina reglulega svo við bara fengum ekki sólsting og brunasár.Svo spurningin er hvað skiptir máli um veður ef tónlistin er góð og stemmning góð :).
mbl.is Leðja og tónlist á Glastonbury
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á stundum er ég hið mesta tjón mitt.

Hæ og hó öll sömul jæja best að smella smá færslu inn varðandi mig.Ég verð nú bara að viðurkenna að minn versti óvinur er stundum bara ég sjálfur með mitt heilabú.Það er nefninlega bara svo að það standa ekki allir og sitja þegar mér hentar og hvað ég veit og ekki veit skiptir stundum engu máli fyrir einmitt aðra en mig sjálfan.

Og afhverju verð ég svona oft fúll þegar að mér finnst innan gæsalappa eitthvað og aðrir skilja ekkert hver ég er að fara,jú sennilega vegna þess að ég er auðvitað ekki aðrir en einmitt bara ég og ég og mín skynjun á ekkert alltaf við aðra.Sumir eru bara heppnir og hafa ekkert kannski þurft að reyna það sama og ég,og ég er ekkert að gera neitt lítið úr hvað hver og einn reynir í sínu lífi heldur það að mitt er mitt og þitt er þitt.

Sem betur fer þurfum við ekkert öll að fara sömuleið í lífinu og það sem ég hef reynt og gert hefur einmitt gert mig að þeim manni sem ég er í dag.Og er ég afar þakklátur mínum æðrimáttarvöldum að svo sé,það er bara oft að samviska og siðfræði mín þarf ekkert að vera sama samviska og siðfræði og þín og kannski er mín vitund ekkert heilög þó mér finnist það stundum :).

Ég hef lengi leitað að svörum sem henta mér og tel mig hafa fengið flest þau svör sem ég þarf,svo að mér geti liðið alla jafna vel.Ég er minnar gæfu smiður og svo er einmitt nú í lífi mínu og ég er sáttur orðinn við spegilmynd mína og þarf svo sem ekkert að sanna eitt eða neitt fyrir einum eða neinum nema auðvitað guði mínum og ég þarf að koma heiðarlega fram við mig og minn guð.

Síðan er auðvitað bara spurning um að breyta rétt, innra með mér eru öll svör varðandi framkomu við mína nánustu og náungann og ég vissulega reyni eftir bestu getu hverju sinni að koma vel fram og oftast tekst mér vel til,og stundum miður vel og meðan ég er meðvitaður um vilja guðs ekki vilja minn þá er ég í lagi og er að breyta eftir bestu vitund og það er einmitt málið að gera hlutina ekki bara vita hlutina.

well vonandi verður helgin ykkur ljúf eins og hún verður mér ljúf kv.Úlli.


Nær vísitalan 9000 stigum á þessu ári?

Jæja næsta markmið er auðvitað 9000 stig,ég tel að á slíku sé nokkuð góður möguleiki.Þetta fer allt auðvitað eftir hvað stjórnvöld gera og ef Helguvíkur dæmið gengur upp og Alkan líka þá vissulega munum við fljúga þangað fljótt manni til tekna umhverfi ekki.Og samt ekki manni nema auðvitað næg vinna en ekki megum við gleyma hvað háspenna gerir lífríki og mannskepnunni eins og öllum skepnum og lífríki.Fyrir næga peninga getum við auðvitað rústað öllu og keypt hitt og þetta,ég veit með mig sjálfan ég er mjög næmur á mikla spennu.Ég verð snælduvitlaus af mikilli spennu og þá er ég að tala um geðheilbrigði mitt ég er ekki viss um að ég geti sætt mig við slétt skipti á heilsu minni eða pening ég hef ekkert að gera með peninginn þegar ég verð lokaður inni við sundin blá.
mbl.is Úrvalsvísitalan setur nýtt met
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ljómandi gott.

Þá er bara að sjá hvað eb gerir varðandi Tyrki,ef allt gengur að óskum þar og samningar nást ættum við Íslendingar að láta slag standa og sýna okkar hug.Þá er ég að tala um inngöngu og að við verðum leiðandi afl í friðarumleitun í heiminum.Ég tel að Ísland sé það land sem besta möguleika á að koma friðarboðsskap áfram enda enginn hernaður hér og þó við höfum hlaupið á okkur varðandi Írak þá er ekki öll nótt úti enn,á okkur er hlustað þegar kemur að velferð og friði í heimi hér og okkur ber að sinna því hlutverki af alhug.
mbl.is Pólverjar lýsa ánægju með samkomulag um nýjan ESB-sáttmála
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Home sweet home

Jæja þá erum við komin heim,ef heim skildi kalla ég fæ ekki afhengt fyrr en 1 ágúst nýja heimili mitt.Og nú bý ég í geymslu svona að mestu með sama stað og svefnpláss hjá mömmu gömlu þangað til ég flyt.Auðvitað er það erfitt en samt svo ljúft því engin kona er mér kærari en einmitt móðir mín og auðvitað Dóttir mín hún er jú kona þó hún sé að verða 7 ára bara ung kona.

Ég komst á fund meðal minna þegar ég kom heim gamla konan sat yfir börnum mínum á meðan og mikið er nú gott að komast á sinn heimavöll þar sem ég þekki jú flesta og get romsað út mínum skít og komist aftur í tæri við guðdóminn og sjálfið fær að víkja fyrir samviskinni minni,sem auðvitað er alltaf að segja mér eitthvað annað en einmitt það sem og ég vill fyrir mig og mína.Ég er alveg maður til að viðurkenna að ég er og verð oft alveg gufuruglaður á köflum og langar mest að sinna nautnaseggnum mínum sem ég reyni að fela fyrir flestum ykkur svona dagsdaglega en það er oft stutt í púkann í mér og hann er líka oft fjári skemmtilegur léttur í lund og glaður með sig oft á tíðum þó hann geti nú líka bara verið hreinn vargur og ömurlegur á köflum.

En meðan ég geri mér grein fyrir hver og hvaðan ég kem þá auðvitað er ég meðvitaður um sjálf mitt og allar kenndir er búa með mér og vissulega í mér.Oft líkar mig ekkert við sjálfan mig en oftast er ég jú nokkuð ánægður með þroska minn og vilja og hvert ég stefni.Mig langar mest að verða verðugur þjónn þess sem öllu ræður og á ég þá við himin og jörð ekki bara jörð og ekki bara varðandi mig og mitt heldur við og okkur öll.Það er bara oft sem ég get ekkert gert og þá auðvitað get ég ekki heldur hjálpað neitt,ég get jú hjálpað mér og þeim er ég unni og reynt að skilja þau og þeirra þarfir og vilja og stundum bara verð ég að leyfa þó mér ekki líki og ég þarf stundum að kyngja jafnvel því sem mér ekki líkar neitt.

Jæja hvað um það samt gott að vera kominn heim eigið ljúfa helgi öll og megi guð ykkur geyma Úlli.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband