Færsluflokkur: Bloggar

Er ekki bara Davíð okkar kandídat

nú þegar lobbíisminn fer allur af stað rússar mæla með Frakkar mæla með og svo koma fram fleiri þjóðir með sína menn.

Ég mæli nú bara hiklaust eftir að alvöru hagfræðingur sem er verðugur fái bara jobbið ekki uppgjafa pólítíkus sem vantar jobb í efri árum svo hann nú fái flottann lífeyri þegar hann svo loks hættir að vera eitthvað wanna be dæmi.


mbl.is Umrót á fjármálamarkaði hefur ekki alvarleg áhrif á hagkerfi heimsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það var og?

Jæja svona er nú staða heimila hérlendis.En hvernig geta 5,6 milljarðar orðið að 11 milljarða aukningu milli mánaða voru við þá með inneign í yfirdrætti uppá 5,4 milljarða mánuðinn á undan hmmmmmmmm eða er ég bara ekki að fatta fréttina?.Og ekki nóg með innlend yfirdráttarlán heldur hafa hin gengisbundnulán tvöfaldast svo erum við alltaf að tala um hversu mikið góðæri sé og að kaupmáttur hafi aukist.Ég er bara ekki að sjá þessi fræði þessara hagfræðinga eða ekki hagfræðinga bestu kveðjur Úlli.
mbl.is Yfirdráttarlán í sögulegu hámarki og gengisbundin lán heimila vaxa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Greenspan saknað eða hvað hann nú hét

Blessaður maðurinn ég sé að hans er sárt saknað og nú vita menn ekki í hvorf fótinn þeir eiga að stíga.Það verður auðvitað mjög erfitt að sannfæra fjársýslumenn að allt sé nú í flottu,menn vita bara eins og er að halli bandaríkjanna vegna heimsmála og því sem þeir jú komu sér í sjálfir er svo ærinn að næstum hver einasti ráðgjafi Bushstjórnarinnar er að koma sér burt áður en það verður of seint.
mbl.is Hlutabréf lækka í verði á Wall Street
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bingó.

Þarna kom það sé myndskeið vel skoðað kemst að þeirri niðurstöðu að Davíð sé Hobbíti.
mbl.is Davíð: Markaðurinn þráði góðar fréttir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sei og svei.

Jæja kominn tími á smá hugleiðingar,og kannski bara blogga ég smá um hversu ruglaður og bilaður ég er hver veit.Ég er auðvitað maður mikilla nautna og lengi vel prufaði ég næstum allt í minni neyslu og var vanur að segja þegar spurður afhverju,ekki stóð á svari mínu nú til að vita um hvað málið snýst.

Auðvitað er þetta viss bilun og ég fór á hættulegar brautir oft á tíðum en ég get með sanni sagt ég veit og skil um hvað er verið að tala þegar fólk talar um Fíkn,svo er annað líka menn og konur geta lesið næstum hvað sem er og stúderað sem skilar mér hverju?erfitt að segja með vissu.

Það er ekki það sama að lesa heyra eða hreinlega reyna sjálfur það virðast allir hafa vissar skoðanir á skilnuðum og svona og svona sé þetta eða hitt,nú ég segi ef þú hefur ekki skilið og misst eða ekki misst þá hefur þú ekkert um málið að segja einfalt og gott,ég tek fram þetta er hugleiðingar mínar ekki þínar.

Svo er annað furðulegt með mig ég hef stúderað mannlegt eðli og tilgang frá því ég var bara barn og verið að tengja mig við guð og reyna að opna vitundina sem jú hefur öll svör,það er bara ég sem vill ekki alltaf fara eftir minni vitund,ég hef að undanförnu verið að berjast fyrir jöfnum rétti og á ég við jafn skal yfir alla menn ganga og þá á ég vissulega við laun sem og annað hvort heldur þú sért karl eða kona.

Mér virðist samt eftir nokkurra mánaða baráttu og bið að við séum ekkert jöfn á Íslandi neitt,börn að mér virðist og er hreinlega sagt af lögmanni tilheyra móður meir en föður og karlmenn hafa lítt náð einhverjum rétti sér til handa hvort heldur hann sé góður faðir eður ei,ég verð bara að segja hreint út ég skil ekki svona bull og þetta er ekki í anda lögmálsins þ.e.a.s Guðs kannski manna jú.

Á undanförnum 50 árum eða svo hafa konur komið sterkar inn í atvinnulífið á Íslandi og vinna þar góð og þörf verk,samt er það svo að nú er samt með 2 fyrirvinnum erfiðara að ná endum saman en þegar bara eiginmaðurinn vann sem er jú að ég skil skylda hans enda er munur á körlum og konum sama hvað hver segir.Ég verð nú bara að segja við Íslenskir Karlmenn erum upp til hópa gungur og látum konur orðið stjórna öllu á heimilinu og alltaf tölum við um jafnrétti í þeim málum,ég kalla þetta frekju og yfirgang og ég vorkenni konum ekki rassgat eitt eða neitt ef þið viljið vera jafnar þá skulu orð þau standa.

Ég vil auðvitað að svona væri með allt ef ég boða mig eitthvað klukkan eitthvað þá mæti ég nú ef ekki þá auðvitað boða ég forföll því allur tími er dýrmætur og tími lækna ekki verðmeiri en minn eða lögfræðinga eða hvað sem er.Segjum sem svo að nú myndi skella á okkur stríð mikið og við þyrftum að verjast,gætu þá ekki bara pabbarnir verið heima með börnin og konur séð um að verjast og berjast,sennilega yrðum við þá bara þurrkuð út og þá auðvitað shit mar,betra hefði verið að konur væru heima og við farið karlanir.

Þá kæmi líka upp staða um getnað það er hægt að geyma sæði til frógunnar ekki leg sem hægt væri að setja í karlmenn?eða hvað mun kannski einndaginn verða hægt að gera slíkt og hvar værum við þá stödd ég gæti getið barn með sjálfum mér og verið hreinlega faðir og móðir hmmmmmmmmmm já mikið djö get ég verið steyptur eða þannigCrying.En þá kæmi náttúrulega aldrei til skilnaðar og ég gæti elskast með sjálfum mér og þyrfti ekkert að velta fyrir hvort sambandið muni nú ganga eða ekki.

Ætli sé ekki best að hugleiða ekki meir að sinni og vera bara ruglaður í kveld og lesa sér til um ljóstifeindir eða eitthvað annað skemmtilegt eins og gerfiefni þau eru jú mörg og til allra hluta notaðir í dag.Eigið góðar stundir og megi Guð vaka yfir ykkur og kannski lækna mig hehehe.

Kveðja Úlli.


Kemur Villa þetta kemur :-)

Sá aðeins úr þessum leik eftir vinnu mína í dag,gat ekki séð betur en mínir menn Í Villa væru bara miklu betri,enda var þetta púra grís hjá Liverpool fyrir viku svo ég segi bara carry on carry on.
mbl.is Newcastle og Aston Villa gerðu jafntefli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki bara hernaðarbrölt.

Já kaninn hefur áhrif víða og eins og sést vel þessa dagana er það ekki bara í hernaðarbröltinu sem þeir eru að klúðra big time líka peningalega valdir að hreinustu martröð fyrir fjölda þjóða.
mbl.is Verðhrun á japönskum hlutabréfamarkaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvaða minningar?

Ég stórefast um að Blair muni yfir höfuð nokkurn skapan hlut,svo ég veit ekki hvaða endurminningar á að skrifa?
mbl.is Blair felur lögmanni að semja um útgáfurétt á endurminningum sínum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver er til í Evru með mér?

Jæja nú tel ég mál að fara að skoða í alvöru inngöngu í E.S.B er þetta kannski það sem við viljum standa uppi eftir árið með verðbólgu sem á sér engin rök og gjaldmiðil sem er hreinasta prump.Markaðurinn er enn að leiðrétta sig og enn eru mörg fyrirtæki ekki enn komin á rétt verðmæta stig.

Ég vil benda á að þetta eru mínar skoðanir og hafa ekkert að gera með neikvæðni ég er kannski bara verkamaður en það er ekki þar með sagt ég sé heimskur,ég hef oft reynst hafa rétt fyrir mér varðandi peningamál og kann alveg að leggja saman og draga frá eigið góðar stundir Úlli.


mbl.is Krónan veiktist um tæp þrjú prósent í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tiger eða Daly?

Ja hefði ég verið staddur í Tulsa Oklahoma sem jú ég hef reyndar oft verið um æfina eftir mótið góða og mætti velja hvort Partyið ég færi í hjá Tiger eða Daly,verð ég að viðurkenna ég færi örugglega í party með Daly.Þar væri sko gamanið hann kann að djamma blessaður drengurinn.
mbl.is Daly tekur ekki mark á Woods
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband