Eins og tuska.

Ég er óttalega ræfilslegur eftir helgina núna,ekki er það vegna neins nema ég hef lítið hvílt mig vegna þessarar blessaða starfs sem ég enn sinni,það er bara svona í þessum bransa ég var á flugvellinum í gær milli 3-4 aftur um miðnættið,síðan kl 6 í morgun á stöðinni milli 10-11 og aftur núna kl 2.

Meira bullið sem ég hef komið mér í og tek ég fram ég kom mér í og þessvegna kom ég mér úr því líka,svona vinna er bara alls ekki fyrir mig,ég vil reglu og röð í mínu lífi.Og auðvitað vil ég vinna við eitthvað sem gefur mér líka til baka eitthvað annað en ójafnvægi og rugl og þetta starf er ekki skapandi fyrir mig fyrir 5 aura.

En allt tekur enda og ég hætti í þessu í nóv,og mikið er ég feginn ekki að ég sé eitthvað vanþakklátur heldur mér vil líða vel í starfi mínu.Og síðan þegar ég finn að eitthvað starf er ekki að gefa mér eitthvað gott fyrir sálina þá er auðvitað best að finna sér eitthvað betur við hæfi,og kannski vinnur maður minna og hefur þá meiri tíma fyrir sig og sína,og slíkt verður ekki metið til fjárs ekki að ég ég sé kindarlegur við þessi skrif mín.

Mig hlakkar mikið til nýja starfsins míns og ég veit að hverju ég geng og þetta er eitthvað sem ég kann ágætlega og hef gaman af og svo er ekki verra að fá sæmilega borgað líka,jú ég hef mörg áhugamál og sum fjandi dýr og sem betur fer er ég duglegur og vinn oft eins og skepna og fyrir vikið get ég þá leyft mér og mínum eitthvað gott og skemmtilegt,eins og tildæmis að ferðast það elska ég mest af öllu þegar ég á frí.Ég bara er ekki þessi týpa sem hangi heima og það er bara ljómandi fínt fyrir mig,það á auðvitað eitthvað annað við aðra en ég hef fundið hvað ég vil út úr lífi mínu og ég lifi mínu lífi,og ég er kannski að reyna að segja ykkur að finna hvað þið viljið og fylgja því megi guð ykkur geyma kveðja Úlli.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband